Eðli innblásturs

Allir efnisflokkar / Innblástur

Innblástur er andardráttur lífsins.

Án hans fer vindurinn úr sál þinni og hún deyr.

Þú getur andað honum að þér og þú getur andað honum frá þér til annarra.

Á hverri stundu ert þú raunar annaðhvort að veita þeim sem eru í kringum þig innblástur eða að draga mátt úr lífi þeirra. Þetta fylgir því óumflýjanlega að vera mannleg.

Líf sem nýtur sannarlega innblásturs og veitir hann er mögulegt ef þú lifir í móttækileika, aga og auðmýkt.

Ef þig skortir eitthvað af þessu þegar þess er mest þörf þá munt þú, í stað þess að veita innblástur, sjúga líf úr þeim sem eru í kringum þig … og þér sjálfum/sjálfri.

En það þarf ekki að vera þannig...

Innblásturskönnunin getur hjálpað þér að finna á fáeinum mínútum hvernig þú andar þegar lífi til þeirra sem eru í kringum þig. Hún sýnir þér hvernig líklegast er að þú dragir mátt úr lífi þínu og annarra og hvað þú getur nákvæmlega gert til að laga þetta.

Hvað geristþegar þú kemur inn í herbergið?

Hvernig starfar hann?

Innblásturskönnunin felur í sér að svara ýmsum spurningum um hvernig þú nálgast tækifæri og áskoranir daglegs lífs.

Hún mun sýna þér hvernig þú nú þegar leyfir andagift að flæða í gegnum þig og varpa ljósi á það sem þú þarft sérstaklega að gera til að fá að reyna jafnvel enn meira af henni.

Tilbúinn að byrja?

Taka Innblásturskönnunina

Eða að kanna hin uppbyggingarefnin.